|
Aðstoð & Öryggi ehf. sérhæfir sig í þjónustu við tryggingafélög og viðskiptavini þeirra, lendi þeir í umferðaróhöppum. Aðstoða við útfyllingu á tjónaskýrslum, mælingar og myndatöku af vettvangi umferðaróhappa, sem lögregla sinnir ekki, og úrvinnslu gagna. Mikilvægt er fyrir tryggingafélögin og einnig eigendur ökutækja að hlutlaus og nákvæm skoðun aðstæðna og myndatökur verði gerðar sem sönnunargögn við uppgjör tjóna. Undirrituð tjónstilkynningin er send rafrænt strax á netfang tryggingarfélagsins til úrlausnar. Vátryggingatakar þurfa því ekki að fara sjálfir með tjónstilkynninguna til tryggingarfélagsins. Með þessu fyrirkomulagi er aukið öryggi þeirra sem lenda í minniháttar umferðaróhappi um að allt komi fram er máli skiptir. Starfsmenn A&Ö þekkja vel hvernig fólk getur brugðist við á vettvangi og eru því vel í stakk búnir að veita sálræna skyndihjálp til þeirra er með þurfa.
|