|
Allir starfsmenn Aðstoðar & Öryggis ehf. eru menntaðir lögreglumenn með mikla og langa reynslu af vinnu þar sem umferðaslys og umferðaróhöpp hafa átt sér stað. Það tryggir fagleg vinnubrögð og að allra nauðsynlegra gagna sé aflað á vettvangi tjóns.
Starfsmenn A&Ö eru vel þjálfaðir skyndihjálparmenn og vanir að takast á við erfið mál og stjórna vettvöngum þar sem óhöpp hafa orðið.
Við tökum einnig að okkur tímabundin verkefni s.s. við ráðgjöf, fyrirlestra og ýmiskonar gæsluverkefni sem eru á okkar sérsviði.
Við önnumst rannsóknir á ýmsum sviðum.
|